Prófíll

  • Nafn: Biggi
  • Staður: ísafjörður
  • Kyn: kk
  • Atvinna: sjómaður
  • Hjúskaparstaða: Fastur
  • Um mig: Er bara hluti af þessu rugli sem við köllum líf
  • Annað: Nei það var ekkert fleira takk

Auglýsing

Stripparinn minn

Image and  video hosting by TinyPic Komin aftur þessi elska :)

Könnun

Hvað á ég að kanna næst?

Wedding Giggles !!!! Magga er gengin af göflunum

09. júlí 2008 klukkan 04:15




Nú er Magga mín komin með wedding giggles að eigin sögn. Mér líst ekert á þetta giggl
í henni og það sem hræðir mig ennþá meira er þessi geðveikis glampi í augunum
sem kemur þegar hún talar um þetta. Það er næstum því eins og hún sé hamingjusöm.
Ég vill ekkert eiga hamingjusama kærustu!! Svo langar mig ekkert að giftast og ganga
í gegnum allt erfiðið sem fylgir því, vakna fyrir hádegi og greiða hárið ,klæða sig í
jakkaföt og sokka, svo þurfa vinirnir að busa mann áður en brúðkaupið fer fram og
ég náttúrulega á enga vini því  þeir snéru allir við mér baki eftir að ég hætti að
svara þeim í símann. Ekki eins og ég þurfi á þeim að halda ég kaupi mér bara nýja
vini sem eru vinir manns skilyrðislaust þ.e.a.s ætlast ekki til að maður bara svari
í símann þegar þeir hringja eins og ekkert væri minna mál. Svo kostar líka peninga að
giftast en Magga sagði reyndar að Pabbi hennar ætti að borga það.Það verður líka
EKKERT til sparað ef af verður . Bless

Nýtt líf

17. apríl 2008 klukkan 16:43

Í dag ákvað ég að fara að taka nýja stefnu í lífinu og fara frá því að gera ekki neitt og yfir í það að gera eitthvað.Það fyrsta sem ég gerði í nýja lífinu var að googla nafninu mínu til þess að sjá hvað myndi gerast. Niðurstaðan var undraverð!!! held að það sé orð. Ég var leiddur beint inná heimasíðuna mína svo ég ákvað að slá tvær flugur í einu höggi og skrifa inná hana en nú er ég orðinn þreyttur eftir þessa gífurlegu lífsstefnu breytingu svo ég verð að segja þetta gott í bili.

Misnotaður :(

26. október 2007 klukkan 06:38





Kæra dagbók nú er dagur 7 í nýja spilalausa lífinu og er bara sæmilega bjartsýnn á þessi mál. Er ný skriðinn fram úr rúminu eftir að hafa legið með hita og ælupest. Hverjum hefði dottið í hug að það fylgdi því að hætta að spila? Það steingleymdist allavena að segja mér frá því. En það var eiginlega lán í óláni því ég þurfti að taka mér auka frí túr á sjónum og hausinn á mér er bara alltof heimskur þessa dagana til að vera að veltast um á einhverri troll skútu fulla af fermingarbörnum og gamalmennum. Ég er samt að velta fyrir mér að nota restina af frídögunum bara í karla athvarfinu því mér finnst ég vera misnotaður. Magga tekur mig með gegn mínum eigin vilja á hótelið og þegar ég er alveg að fara að brotna niður og gráta þá öskrar Magga á mig og rekur mig í að skúra. Ég bara get ekki þolað meira veit ekki hvað ég á að gera. Ég er bara svo hræddur um að ef ég fer útaf hótelinu þá finnur hún mig. Bless

Færsla

23. október 2007 klukkan 04:46



Ég og Magga sitjum hérna og vöktum hótelið saman. Við tókum nokkur scrabble spil og má til gamans geta að ég vann möggu ekki einu sinni heldur fjórum sinnum. Viðurkenni það alveg að það getur verið þreytandi að vera bestur en þetta er bara eitthvað sem ég verð að læra að lifa með.Í kvöld komumst við Magga að því eftir miklar vangaveltur að það væri sennilega sniðugra að láta stelpurnar í hamraborg skjótast með pizzu til okkar frekar en að við værum að æða eitthvað út og kaupa í matinn svo Magga hringdi í hamraborg og stelpan í símanum sagði " hamraborg get ég aðstoðað ? " þá sagði Magga "Já ég ætla fá 16" pizzu með pepperoni á helmingnum og svartann pipar " Þá sagði stelpan " Fleira ? " Þá sagði Magga " Já ég ætla líka að fá 2 lítra af coke light og fjóra drauma " Þá sagði Stelpan " Já hvert á ég að senda þetta " Þá sagði Magga " Eyrargata 3 " ég heyrði ekki hvað stelpan sagði þá en mig grunar að hún hafi sagt að þetta yrði komið eftir svona 20 min. Þær segja það nebblega oft. En Magga virtist vera þakklát því hún sagði takk fyrir. Eftir að við vorum búin að borða pizzuna þá fór að hitna doldið í kolunum föt fóru að fjúka og og orð voru sögð og áður en við vissum af þá vorum við bara komin í svaninn, fórum svo beint yfir í vörubílinn og enduðum leikinn í ánamaðkinum. Bless

Pirraður

22. október 2007 klukkan 04:13





Hef ekki mátt vera að því að blogga mikið undanfarið því ég hef verið upptekinn að því að skapa sjálfum mér og mínu nánasta fólki erfitt líf bæði andlega og fjárhegslega. Var að lesa bloggin fyrir neðan þar sem ég er að væla einhver 9000 kr tap held að það sé óhætt að bæta við nokkrum núllum þar fyrir aftan eins og staðan er í dag. En ég er rosalega upp með mér að komast að því hvað eru margir að velta mínu lífi fyrir sér. Ég var frontaður um daginn með það að ég var að ræða mál annara og fékk það blákalt í andlitið, átti það líka skilið því ég var að þvaðra um fólk og mál sem ég vissi ekkert um og mál sem mér kom ekkert við yfir höfuð.Það var óþæginlegt að fá það í andlitið en það kenndi mér að segja ekki um fólk það sem ég get ekki sagt við það. Því annara líf kemur mér nákvæmlega ekkert við. Biblían er bók sem ég trúi ekkert endilega á en hún inniheldur samt mikið af góðum punktum eins og t.d "mændu ekki á flísina í augum annara þegar þú ert með bjálka í eigin" og "sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum" (eitthvað í þá átt allavena) það er ekki gaman að koma heim til sín og heyra það hvað fólk er að blaðra útí bæ um það sem þeim kemur ekki við. en ég hef ákveðið að setja bara mín mál inná heimasíðuna svo fólk geti bara lesið hvað er í gangi og kannski farið að hafa meira áhyggjur af sínum eigin málum og talað bara frekar um veðrið heldur en eymd og ófarir annara.Maður fær það samt stundum á tilfinninguna að mannskepnan þurfi meira á því að halda að tala illa um aðra heldur en loftið sem við öndum að okkur og ekki er ég saklaus af því ,en lærir meðan lifir sagði einhver.Það er bara verst að sumir læra aldrei. Hérna eru samt nokkrar staðreyndir sem fólk hefur verið að velta fyrir sér. Já ég er búinn að láta mína spilafíkn bitna á möggu og minni fjölskyldu. Nei ég hef ekki sinnt mínum skyldum eða væntingum gagnvart Emil .Já ég hef skapað mér og möggu erfiða daga fjárhagslega. Og að lokum þá er svarið nei við þeirri spurningu hvort ég og magga séum hætt saman því miður verður fólk sennilega að bíða eitthvað aðeins lengur með að tala um það. Ætla svo að fara að vera duglegri við að uppfæra erfið og leiðinleg mál inná síðuna svo fólk hafi eitthvað að tala um.

Skrifa

09. febrúar 2007 klukkan 00:45


Nú er klukkan að nálgast rétt rúmlega miðnætti og ég sit á hótelinu og læt mér leiðast því Magga þorir ekki að vera ein í vinnuni sinni, Var rétt í þessu að bjóðast ósiðlegt tilboð um líkamlegar aðgerðir í lyftunni. Ég afþakkaði með þögninni, án þess að vera búinn að gera upp hug minn almenninlega samt. Gæti kannski orðið spennandi, eða virkilega vandræðalegt, veit ekki. En annars er ég búinn að vera að skunda sjóinn undanfarið þar sem ég er kominn með allt niðrum mig fjárhagselga sökum ofur áhuga á fjárhættuspilum af ýmsu tagi og ekki batnaði ástandið eftir að Margrét kom inn í líf manns. Óþarfa útgjöld heimilisinns hækkuðu um rúmlega 230 % eftir skatt sem þýðir að þau fóru úr allt of miklu yfir í miklu meira en allt of mikið. Sem er kannski alls ekkert miklu meira en allt of mikið miðað við hvað hún þarf að umbera með því að vera í sambandi við mig. Bless  

Blogg

05. desember 2006 klukkan 10:09


Ég get ekki sofið svo ég ákvað að bara blogga pínu, því þá ekki það. Veit samt ekki hvort nokkur nenni að skoða síðuna mína lengur þar sem ég nenni ekki að skrifa inná hana. En ég hef verið að velta mér doldið uppúr því sem sumt fólk kallar ást.Að mínu mati getur ást verið jákvæð ef hún er notuð á réttan hátt, það er t.d allt í lagi að elska mat eða áhugamálin sín eins og t.d póker og jafnvel dýr því þau skilja hvort sem er ekki upp né niður í neinu en þegar kall ætlar að reyna að elska konu eða öfugt þá hlýtur það bara að enda illa því kona og kall eru alveg tveir ólíkir hlutir. Konan hefur ekki hugmynd um það hvernig karlinn virkar og karlinn veit ekkert um það afhverju konan er eins og hún er. Gunnar vinur minn í krossinum segir að kona megi ekki elska konu og karl megi ekki elska karl því þá sé maður að bjóða syndinni í kaffi og það er sko ekki gestur sem fólk vill fá heim til sín í kaffi.Kannski hefur hann rétt fyrir sér, æ dónt nó. En kannski mögulega var þetta bara prentvilla þegar bókin góða var gefin út, því mig er farið að gruna að samkynhneigt fólk hafi bara alveg hárrétt fyrir sér og við hin sem erum að reyna að láta það ganga upp að vera með manneskju af gagnstæðu kyni séum bara að pissa uppí vindinn. Bless

Ekkert Mál

17. september 2006 klukkan 23:13
Sit hér á Langa Manga að spila Tetris. Svo Hreinn og svo Fínn. Og er meira að segja soldið sætur. Bara láta ykkur vita. Bleeeeeess

02. september 2006 klukkan 18:55

Þar lá kötturinn grafinn

30. júní 2006 klukkan 00:37




Ég hef komist að því að þó ég eyði mest öllum mínum frítíma í að skoða klámfengið efni á netinu, þá þýðir það ekkert að ég sé kynlífssfíkill, ég er bara steingeit 
Allavena samkvæmt ljóðinu hérna fyrir neðan og ekki lýgur ljóðið.  (stolið af síðuni hennar vilborgar)


Steingeit(22.des - 19.jan)

Kynlíf og ást eru mjög mikilvægir þættir í lífi steingeitar en þeir
fullnægja aldrei þörf hennar fyrir veraldlega viðurkenningu í rúminu
- Kynlífsglatt stjörnumerki
- Steingeitin er raunsæ og rómantísk í rúminu
- Kýs hæfileikaríkan elskhuga með sterkt ímyndunarafl
- Stekkur aldrei inn í ný sambönd án langs undirbúnings
- Þegar steingeitin elskar loksins, elskar hún ákaft og af öllu hjarta
- Auðsærð í rúminu
- Er sjálfri sér næg í rúminu en leitar samt verndar sem hún finnur í góðu
sambandi þar sem jafnvægi ríkir
- Þarf ást en óttast um leið sársaukann sem hún kann að valda
- Kynþokki hennar vex með aldrinum og sömuleiðis leikirnir sem fram fara í
rúminu
- Gott úthald í rúminu